Markmið og tilgangur
Agile netið er stofnað til þess að sameina íslensk fyrirtæki sem beita Agile og Lean aðferðum. Meðlimir Agile netsins vilja styðja við uppbyggingu á sterkum íslenskum upplýsingatækniiðnaði með útbreiðslu Agile og Lean aðferða ásamt því að styðja við grasrótarsamfélagið.
Starfsemin endurspeglar tilganginn
Agile netið er ekki rekið með gróðamarkmiði og er öll vinna unnin í sjálfboðastarfi. Hóflegt árgjald er tekið fyrir þátttöku í Agile netinu til þess að standa straum af markaðssetningu og starfsemi sem er eftirfarandi:
-
Stuðningur við Agile grasrótina: Agile netið styrkir Agile hópinn með því að:
- Borga lén og hýsingu á agile.is
- Fyrirtæki lána húsnæði undir fundi.
- Kaupa gos og samlokur á
hádegisfundi.
- Þátttaka í alþjóðlegum Agile samtökum: Agile netið er í tengslum við alþjóðlega Agile samfélagið.
- Upplýsingavefur: Agile netið rekur þennan vef á íslensku og ensku (enska kemur bráðum).
Stofnfélagar Agile netsins
Stjórn Agile netsins
Fyrirtækin í Agile netinu kjósa þriggja manna stjórn sem er ábyrg fyrir starfsemi félagsins.
Í núverandi stjórn félagsins sitja:
Formaður: Steinn Arnar Jónsson - Hugsmiðjan
Gjaldkeri: Logi Helguson - Landsbankinn
Ritari: Sigtryggur Arnar Árnason - Betware
* Hulda Hallgrímsdóttir gegndi embætti gjaldkera fyrri hluta núverandi stjórnartímabils.
Hafa má samband við stjórnina með því að senda póst á info@agilnetid.is eða nota hafa samband formið.












