Vísindaferðir
Þekkingarmiðlunarfundur
Þann 18.maí var haldinn þekkingarmiðlunarfundur í húsnæði CCP. Daði Ingólfsson hjá Spretti stjórnaði fundinum, sem haldinn var með svokölluðu open space sniði. Þátttakendur skiptu sér upp í minni hópa sem krufu ýmis Agile topic og miðluðu eigin reynslu. Fundurinn heppnaðist mjög vel og spunnust m.a. umræðuhópar um Kanban, Scrum, TDD, vöruskilgreiningu, áætlanagerðir, skapandi hugsun, vörueigendur, og betrumbætur.
Sjóvá
Þann 14.apríl, 2011, fórum við í vísindaferð í Sjóvá. Þar hlýddum við á áhugaverða fyrirlestra um innleiðingu Lean hjá Tjónasviði Sjóvá og innleiðingu á scrum hjá Sjóvá. Hér að neðan eru glærur úr fyrirlestrunum.
TM Software
Þann 17. febrúar, 2011, fórum við í vísindaferð í TM Software. Þar hlýddum við á áhugaverða fyrirlestra um agile innleiðingu hjá TM Software og hvernig Tempo tímaskráningarkerfið varð til. Hér að neðan eru glærur úr fyrirlestrunum.
Sprettur Marimo
Þann 14. desember, 2010, fórum við í vísindaferð í Sprett Marimo. Við hlýddum á áhugaverðan fyrirlestur um Wonka, stjórnunarkefi Spretts og fórum í nýsköpunarleik varðandi framtíð Agile netins, þar sem mjög áhugaverðar umræður spruttu upp. Hér að neðan eru glærur úr fyrirlestrinum og myndir á Facebook.
Betware
Önnur vísindaferð Agile netsins var í Betware þann 15. sept., 2010. Þar hlýddum við á mjög skemmtilega fyrirlestra um Agile innleiðingu hjá Betware, prófanir, viðmótshönnunartól og project retrospectives. Hér að neðan má finna glærur úr fyrirlestrum kvöldsins og myndir á Facebook.
- Betware og vörður í Agile innleiðingu
- Prófarar í Agile teymi
- Reynsla af notkun viðmótshönnunartóla
- On Project Retrospectives
- Myndir úr vísindaferðinni
Síminn
Þann 19. maí, 2010, stóð Agile netið fyrir fyrstu vísindaferðinni. Þá gafst meðlimafyrirtækjum kostur á að sækja heim Símann og hlýða á mjög áhugaverða fyrirlestra um Agile innvæðingu í Símanum og notkun Scrum og Kanban við þróun og rekstur. Hér að neðan má finna glærur úr fyrirlestrum kvöldsins og nokkrar myndir á Facebook.
- Agile transition at Síminn - General overview and timeline
- Lean portfolio management - Accelerating project delivery using lean thinking
- Rekstur og þróun sjónvarpsþjónustunnar með Scrum
- Myndir úr vísindaferðinni


