Starfsemi

Markmið og tilgangur

Agile netið er stofnað til þess að sameina íslensk fyrirtæki sem beita Agile og Lean aðferðum. Meðlimir Agile netsins vilja styðja við uppbyggingu á sterkum íslenskum upplýsingatækniiðnaði með útbreiðslu Agile og Lean aðferða ásamt því að styðja við grasrótarsamfélagið.

Starfsemin endurspeglar tilganginn

Agile netið er ekki rekið með gróðamarkmiði og er öll vinna unnin í sjálfboðastarfi. Hóflegt árgjald er tekið fyrir þátttöku í Agile netinu til þess að standa straum af markaðssetningu og starfsemi sem er eftirfarandi:

  • Stuðningur við Agile grasrótina: Agile netið styrkir Agile hópinn með því að:

    • Borga lén og hýsingu á agile.is
    • Fyrirtæki lána húsnæði undir fundi.
    • Kaupa gos og samlokur á
      hádegisfundi.
  • Þátttaka í alþjóðlegum Agile samtökum: Agile netið er í tengslum við alþjóðlega Agile samfélagið.
  • Upplýsingavefur: Agile netið rekur þennan vef á íslensku og ensku (enska kemur bráðum).

Stofnfélagar Agile netsins

    betware  calidris  ccp  hugsmidjan  islandsbanki
    Landsbankinn  siminn  sjova  sprettur  tm_software

Stjórn Agile netsins

Fyrirtækin í Agile netinu kjósa þriggja manna stjórn sem er ábyrg fyrir starfsemi félagsins.

Á stofnfundi Agile netsins þann 17. mars, 2010, var eftirfarandi stjórn kjörin:

        Formaður: Rakel Sigurðardóttir - Betware

        Gjaldkeri: Dísa Anderiman - Sprettur Marimo

        Ritari: Steinn Arnar Jónsson - Hugsmiðjan

Hafa má samband við stjórnina með því að senda póst á info@agilnetid.is eða nota hafa samband formið.

Vísindaferðir

Fyrirtækin í Agile netinu halda reglulega vísindaferðir sín á milli til að miðla þekkingu og læra hvert af öðru.  Hér að neðan má finna upplýsingar um vísindaferðir sem haldnar hafa verið og nálgast skyggnur úr fyrirlestrum.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica