Fréttir

Fyrirsagnalisti

Styrkir til umsóknar

afhverju-taka-thatt

Agile netið auglýsir styrki til umsóknar fyrir Agile tengda fyrirlestra. Eitt af markmiðum Agile netsins er að breiða út boðskap Agile og Lean. Við viljum sjá sem flesta fyrirlestra um Agile tengd málefni og sækjumst eftir að styrkja slíka viðburði. Styrkurinn getur verið í formi veitinga, aðstoð við að útvega sal eða greiðslna til fyrirlesara ef við á. Einu skilyrðin er að fyrirlesturinn sé Agile/Lean tengdur og opinn almenningi.

Áhugasamir vinsamlegast sendið póst á stjornin@agilenetid.is með upplýsingum um viðburðinn sem þið viljið að við styrkjum.

 

Þekkingarmiðlunarfundur heppnaðist vel

Þann 18. maí, 2011, var haldinn þekkingarmiðlunarfundur í húsnæði CCP. Daði Ingólfsson hjá Spretti stjórnaði fundinum, sem haldinn var með svokölluðu open space sniði. Þátttakendur skiptu sér upp í minni hópa sem krufu ýmis Agile topic og miðluðu eigin reynslu. Fundurinn heppnaðist mjög vel og spunnust m.a. umræðuhópar um Kanban, Scrum, TDD, vöruskilgreiningu, áætlanagerðir, skapandi hugsun, vörueigendur, og betrumbætur. Sjá meira á síðu um starfsemi félagsins.

 

Vísindaferð í Marel 1. sept

Næsta vísindaferð Agile netsins verður í Marel þann 1. sept., 2011, frá kl. 16:30 til 18:30. Þar fáum við að fræðast um Agile innleiðingarferli Marel og heyra um sýn mismunandi starfshópa á Agile aðferðir. Í lokin fáum við svo túr um framleiðslugólf Marel, sem er gríðarstórt.

Sjá meira á síðu um starfsemi félagsins.

 

Agile hópurinn sameinast Agile netinu

Agile netið og Agile hópurinn hafa sameinast í eitt félag.  Eftir hrinu funda milli félagana í sumar var lendingin var sú að Agile hópurinn myndi renna inn í Agile netið og þar með styrkja fyrirlestrahluta starfsemi Agile netsins (útbreiðsla Agile fagnaðarerindis).  Agile hópurinn hefur eins og margir vita staðið fyrir ýmsum opnum fyrirlestrum um Agile tengd málefni á undanförnum árum.  Er planið að halda því áfram, en héðan í frá í nafni Agile netsins.  Við stjórn Agile netsins bætist eitt stöðugildi, kynningarfulltrúi, sem Pétur Orri Sæmundsen hefur tekið að sér.  Þessi staða er óformleg fram að næsta aðalfundi, þegar hún verður sett í lög og kosið um hana.  Pétur er þegar farinn að vinna að fyrirlestraplani fyrir veturinn, sem hefst með hádegisfyrirlestri um Kanban, í Skýrr þann 30. ágúst. 

 

Hádegisfyrirlestur um Kanban 30. ágúst

Þann 30. ágúst stendur Agile netið að fyrirlestri um Kanban hjá veflausnum Skýrr.  Framsögumaður er Ólafur Sverrir Kjartansson.  Hjá veflausnum Skýrr hefur Kanban verið notað fyrir beiðnir viðskiptavina síðan í maí 2010 með góðum árangri.  Ólafur Sverrir fer yfir hvaða áhrif það hefur haft, hvaða breytingar hafa verið gerðar og hvað framtíðin ber í skauti sér.  Ólafur Sverrir hefur starfað hjá veflausnum Skýrr í 5 ár (áður Eskill, áður Innn) og er í dag í hlutverki verkefnastjóra, forritara þegar tími leyfir og aðal Agile áhugamanns.  Fundurinn er haldinn í samstarfi við Dokkuna og Háskólann í Reykjavík.  Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík og hefst kl. 12.  Samlokur og gos í boði Agile netsins.

 

Þekkingarmiðlunarfundur 4. október

hugsm-logo-whitespace

Næsti viðburður á vegum Agile netins verður þekkingarmiðlunarfundur.  Þekkingarmiðlunarfundir eru kjörin tækifæri fyrir meðlimafyrirtæki að læra hvert af öðru og fá tækifæri til að spyrja aðra Agile tengdra spurninga.  Er teymið þitt í vandræðum með eitthvað ákveðið?  Þá endilega spurðu aðra meðlimi hvernig þeir hafa leyst svipuð vandamál.  Fundurinn verður haldinn í Hugsmiðjunni, Snorrabraut 56, þriðjudaginn 4. október frá kl. 16:30 til 18:30.  Fundinum verður stjórnað af Pétri Orra Sæmundsen, Agile gúrú og er opinn öllum meðlimafyrirtækjum.  Boðið verður upp á pizzur og bjór.

 

Fyrirlestur 25. október - Agile og sjónstjórnun hjá vöruþróun Marel

Fyrirlesturinn var þann 25. október kl. 12.00 - 13.00 í Háskólanum í Reykjavík, fyrirlestrarsalur M101 á 1. hæð.  Á fundinum var fjallað um hvað innleiðing á Agile og sjónstjórnun hefur haft í för með sér hjá vöruþróun Marel. Farið var yfir þær breytingar sem hafa átt sér stað, hvað hefur reynst þeim vel og hvað hefði betur mátt fara. Litið var á málið frá sjónarhorni þess sem leiðir innleiðinguna, frá sjónarhorni vörustjóra sem og teymismeðlims. Einnig var litið til framtíðar og sagt frá hvað felst í næstu skrefum hjá vöruþróun Marel.


Framsögumenn:

Rósa Björg Ólafsdóttir er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað í UT geiranum í yfir 20 ár og hefur leitt innleiðingu Agile aðferða hjá vöruþróun Marel.
Hrafnkell Eiríksson er með M.Sc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá DTU. Hann hefur starfað hjá Marel í 10 ár sem tækjahönnuður með áherslu á "embedded" hugbúnað og stýringar og hefur nýverið tekið við hlutverki vörustjóra.

 

Vísindaferð í Sabre 3. nóvember

Næsta vísindaferð Agile netsins verður í Sabre þann 3. nóv., 2011, frá kl. 16:30 til 18:30. Þar fáum við að fræðast um Scrum og dreifð teymi í Sabre og mat á notkun agile aðferða í stóru fyrirtæki.

Sjá meira á síðu um starfsemi félagsins.

 

Þekkingarmiðlunarfundur 8. des

Þann fimmtudaginn 8. des héldum við þekkingarmiðlunarfund í Landsbankanum að Thorvaldsenstræti 4.
Við héldum okkur við við open space fyrirkomulagið, þar sem hver sem er getur stungið upp á umræðuefni.   Fundarstjóri var Steinn Arnar Jónsson.
Þekkingarmiðlunarfundir eru kjörin tækifæri fyrir meðlimi til að auka Agile þekkingu sína og fá tækifæri til að spyrja aðra Agile tengdra spurninga.

 

Vísindaferð í CCP 25. janúar

Næsta vísindaferð Agile netsins verður í CCP að Grandagarði 8, þann 25. janúar frá kl. 16:30 til 18:30. Það verður án efa fróðlegt að fá að kynnast því hvernig CCP háttar agile málum hjá sér. Fyrirlesturinn verður á ensku og ber titilinn "Building the right it ... and then building it right". Í tilkynningu frá þeim segir:
CCP invites you to attend a twin-panel in which the agilistas of CCP will cover topics and answer questions in the context of "building the right it" and then "building it right "

 

Fjallað um Agile netið í Morgunblaðinu

Morgunbladid_preview
Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við formann Agile netsins, Stein Arnar Jónsson.  Þar fjallar hann um Agile netið og almennt um Agile og Lean fræðin.

 

Vísindaferð til CCP

Skemmtilegar umræður varðandi breytt skipulag og tæknilegar uppsetningar á þróunarferlum hjá CCP fóru fram í vísindaferðinni.
Nánari upplýsingar um hvað var rætt ásamt glærum og myndum frá vísindaferðinni má finna undir Starfsemi

 

Fyrirlestur um Lean Startup

Þann 22. mars hélt Agile netið, í samvinnu við Dokkuna og HR, fyrirlesturinn "Ný hugsun - Lean Startup".  Fyrirlesari var Pétur Orri Sæmundsen, framkvæmdastjóri hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtækisins Spretts.  Lean Startup er hugmyndafræði til þess að nálgast nýsköpun, hvort sem um er að ræða þróun á nýjum fyrirtækjum (startup) eða þróun á nýjum viðskiptaeiningum/vörum í rótgrónum fyrirtækjum.  Einföld leið til að skilgreina Lean Startup er eftirfarandi: Lean Startup = Agile + Lean + Customer Development + nýtt orðasafn.  Í fyrirlestrinum kynnti Pétur helstu atriðin í Lean Startup með sérstaka áherslu á Customer Development og nýja orðasafnið.

Sjá myndir og glærur á síðu um starfsemi félagsins.

 

Vísindaferð til Íslandsbanka, fimmtudaginn 29.mars kl. 16:30 - 18:30

Fimmtudaginn 29.mars frá kl. 16:30 - 18:30 var vísindaferð í Íslandsbanka.

Dagskráin var:

- Kynning á umhverfi
    - Sagan hjá Íslandsbanka
    - Hvernig við erum að gera þetta í dag
    - Hvað er gott og hvað er ekki eins gott?
- Sýn Scrum Master
- Sýn forstöðumanns
- Sýn deildarstjórans
- Sýn forritarans
- Sýn prófara

 

Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica